Það var einusinni flokkur á þingi sem var á móti öllu, bókstaflega öllu, og ef þeir á annað borð studdu mál á alþingi þá voru þau samt aldrei jafn góð og flott og þau myndu vilja hafa það. Þessi flokkur talar í dag, og þá sérstaklega heilbrigðisráðherran, um skatta hækkanir.
Þessi flokkur sem telur sig geta tekið erfiðar ákvarðanir og leitt þessa þjóð í gegnum efnahagsþrengingar næstu ára ætlar greinilega að fjármagna það með skatta hækkunum. Nú hefur séra. Ögmundur hætt við enn einn niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu í von um atkvæði í kassann. Málið er einfalt, ef nógu margir mótmæla þá er lúffað þetta kallast á ensku "has no balls"

.
Því er nokkuð ljóst að allar óvinsælar aðgerðir og erfiðar ákvarðanir sem teknar voru af fyrri ríkisstjórn verða afturkallaðar og settar inn í framtíðar skattahækkanir. Ég er ekki viss um að allir þeir sem skrifuðu undir
þennan mótmælalista vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu verði jafn ánægð(ir) þegar þau fá eftir kosningar skattprósentu upp á 40% +2% ef þú er með yfir 500.000 kr og svo +8% ef þú ert með hærri tekjur en það (samkvæmt ályktun landsfundar VG sem lesa má á
http://www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/4020 ) ásamt "sangjörnum eignaskatti" er eitt af samþykktum fundarins.
Flokkurinn sem sagði að það væri ósangjarnt að láta heimilin borga ætlar sko að láta heimilin BORGA!!!!! Fólk sem hefur farið vel með peninga sína og á hús sín skuldlaus skal vera refsað fyrir það.
Þrátt fyrir að kapítalisminn hafi skitið á sig er samt mikið að grundvallar kenningum hagfræðinnar enn í gildi. Það er t.d. ekki samasem merki milli aukinar skatt prósentu og meiri skatt tekna, heldur þvert á móti.
Ég hef samt verið mun ánægðari með Steingrím Joð sem hefur þorað að tala hreint út og er ekki að lúffa í einum grænum þó að hann komi með óvinsælar ákvarðanir. Mér finnst líka frábært að VG hafi lýst því yfir að þeir eru á móti inngöngu í ESB en vilja samt fara í aðildaviðræður og leggja það í dóm fólksins í landinu hvort við eigum að samþykkja. Þeir fá plús fyrir það.
Eitt að lokum sem mér finnst samt líka fyndið. Nú er VG orðin já flokkurinn því að hann situr í ríkisstjórn og nýji nei-flokkurinn eru fasteignasalarnir og lögfræðingarnir í Sjálfstæðisflokknum. Vá hvað tímarnir breytast hratt